Er ég í félagslegri hættu ?
Þetta hefur verið hálf lúðalegur dagur, umvafin flíspeysu og tefaskóm... og heimskulegum hugmyndum! Buin að vera að lesa í allan dag og þar af leiðandi sló ég persónulegt met mitt í kaffidrikkju..... merkilegt að þrátt fyrir óhuggulegt magn af kaffi hef ég rétt haldist hérna megin við línunna! hhhmmmmmm Allavega.. gæti drepið mann og annan úr leiðindum með þekkingunni sem ég náði mér í ..í dag.. hhmm en það sem er svoldið skerí við þetta er að mér fannst þetta rosalega skemmtilegt!!! Er farin að hafa smá áhyggjur af skemmtanagildinu / skemmtanastuðlinum mínum !!!!! Verður hægt að bjarga mér?

1 Comments:
nei! ég held að það sé góð hugmynd að skipta Mörtu í faglegu Mörtu og svo skemmtilegu Mörtu og ekkert reyna að blanda þessu saman. Bjarni bróðir reyndi og er enn að reyna ef þú veist hvað ég á við!!!!
7:45 PM
Post a Comment
<< Home